Já það eru greinilega bara alltaf jólin hjá mér enda er ég algert jólabarn

. En hvað um það, það er alltaf nóg að gera hérna í Espigerði, fengum til okkar bræður hans Palla og kvinnurnar þeirra í gærkveldi. Það var grillað þetta geggjaða lambalæri og borðað saman sem var mjög notó. Verst að ég var alveg eins og zombie þar sem ég svaf ekkert alltof mikið eftir næturvaktina á fimmtudag. Þetta var þó ægilega notalegt og okkur tókst meira að segja að lækna þynnkuna hjá henni svilkonu minni með matnum

. Við fengum meira að segja nokkuð stórar fréttir frá öðru parinu en það verður geggjað brúðkaup í sumar ( þó svo ég fái ekki að vera hringaberi, sama hvað ég reyndi að telja þau á það að leyfa mér það

). Í kvöld erum við svo að fara í dinner út í Garð en þá eru Bifrestingar að njóta þess að vera til og vera saman. Við erum svo að hendast út til Lúx þann 18. mars sem verður bara geggjað. Stefnan er tekin á að kíkja á Nonna, Elsu og Sváfni og njóta þess að vera til og verðum við úti hjá þeim til 23. mars. Sumarið verður ekki síður bissí, Bræðurnir ásamt okkur kvinnunum eru á leið til Danmerkur og verðum við þar í rúma viku. Ekki leiðinlegt það, ástæða þess að við ákváðum að skella okkur er að hann Olli er 30 ára í ár og er þetta svona gjöf frá okkur hinum til hans. Í maí og júlí verður svo fjölgun í fjölskyldunni þar sem bræður mínir elskulegir eiga von á sér. Það verður spennandi að sjá litlu krílin og kynnast þeim. Salka verður stóra systir og ég held bara að hún muni standa sig með príði daman. Annars er afar skrítið hvað hún er búin að stækka og þroskast fljótt, mér fannst hún eiginlega bara hafa fæðst í gær. Verst er þó að hún mamma sem var nú baby óð áður en hún lést mun ekki koma til með að fá að njóta þess að fylgjast með þessari þróun. Held reyndar að hún myndi nú hafa djöflast í mér varðandi barneignir. Hún amma mín elskuleg sá reyndar um það, heyrði í henni um daginn og var spurð eins og henni var einni lagið, ,,hvernig er það ert þú ekki að fara að koma með barn?,,

. Greinilega ekki nóg að tveir af fjórum systkinum séu að sjá um þetta.